Þessi síða inniheldur eldri fréttapunkta af forsíðu.


 

            26.09.09

Allt að gerast hjá M-Audio þessa dagana.

Smelltu á myndina og sjáðu meira...

 

 

 

            31.08.09

Pearl-europe var rétt í þessu að skjóta upp nýju og endurbættu

vefsvæði, okkur öllum til gleði og ánægju. Þar sérðu allt

sem þig vanhagar um og meira til...

Sjáðu hér.

 

 

            18.08.09

Í tilefni af því að VOX effektasending var að detta inn á

gólf hjá okkur finnst okkur við hæfi að láta ykkur vita að

nú er hægt að fara inn á heimasvæði VOX og hala niður

fimm lögum með meistara Satriani án þess að borga sent fyrir.

Bæði Satchurator og Big Bad Wah komu

í þessari sendingu...

 

 

 

            08.06.09

Vox Valvetronix VT gítarmagnararnir sem komu í nýju

 sendingunni hafa aldeilis verið að falla í góðan jarðveg

hjá gítarleikurum. Hér er á ferðinni eðalstöff, uppfærðar

útgáfur af magnaratýpum og effektum, búið að fjölga

"presetum" og bönkum sem segir okkur

jú, að stuðið þokist bara uppávið.

Sjáðu allt um VT-línuna hér.

 

 

            18.05.09

Fyrir þá sem ekki vita þá komu Road Worn gítararnir

í nýju Fender sendingunni, en þetta eru einmitt gígjurnar

sem hafa fengið afbragðsdóma í fagritum undanfarið.

Sjáðu t.d. dóma hér, hér og hér, nú eða kíktu

í verslanir Hljóðfærahússins Tónabúðarinnar

og kannaðu málið...

 

 

            08.05.09

Eins og alþjóð veit þá kom ný sending frá M-Audio á

dögunum, öllum til ómældrar ánægju. Í sendingunni

var m.a. splunkuný útgáfa (8) af Pro Tools m-powered,

en óhætt er að fullyrða að aldrei hefur Pro Tools forritið verið

öflugra en akkúrat í dag...

Sjáðu allt um þessa nýju útgáfu hér.

 


 

 

            11.04.09

Á ný yfirstaðinni MusikMesse hlaut Vox M.I.P.A. verðlaunin

í flokkunum „Besti gítarmagnarahausinn“ og

„Besti gítareffektinn“ á sýningunni.

Gítarmagnarahausinn umræddi er

Vox Night Train, 15 watta lampadúlla en

gítareffektinn er Vox Satchurator sem er distortion pedall

gerður í samstarfi við gítarsnillinginn Joe Satriani

og er bjöguð snilld...


 

 

          23.03.09

Í nýjasta tölublaði Sound on Sound er umfjöllun

og dómur um nýjustu afurð Steinberg-manna, Cubase 5.

Óhætt er að segja að græjan fær lofsamlega dóma, en

meðal annars segir í niðurlagi dómsins:

"Rather than simply focus on redoing the user

interface, or adding only 'me too' features from competing

products, Steinberg seem to have really thought about functionality

that will help users get more from the application.

If Sound On Sound ever has to review Cubase 5

for a third time, there will be

a high standard to beat."

Stuð á öllum hæðum...

 


 

 

            03.03.09

Ovation kynntu á dögunum "2009 Collector´s edition"

gítarinn, en árlega kemur frá þeim gítar í þessari seríu.

Í ár skartar gripurinn m.a. KOA toppi og ebony fingurborði.

Sjáðu meira hér.


 

 

             16.02.09

Svona til gamans má geta þess að Ultrasone voru nýverið

að tilkynna til sögunnar nýja týpu af heyrnatólum „ Edition 8“.

Þessi hljóma eins og vindurinn og fjöllin allt í kring,

eins og við var að búast frá Ultrasone.

Sjáðu allt um Ultrasone hér.


 

            04.02.09

TC Helicon, undirdeild TC Electronic, kynntu nýverið

VoiceLive2 röddurnargræju sem uppfærða útgáfu af

VoiceLive sem áður hefur komið til landsins.

VoiceLive2 er í alla staði ótrúlegt verkfæri og

án efa bráðsniðug hvort heldur er á svið eða í stúdíó.

Sjáðu meira hér.

TC Electronic kynntu m.a. nýjann bassa magnara á

NAMM '09...Bass Amp 2.0 sem vakti lukku.

sjáðu meira um hann hér.


 

            27.01.09

Smá konfekt fyrir augun frá Pearl. Þetta trommusett er úr

Masterworks seríunni, en myndin er tekin á

ný yfirstaðinni NAMM sýningu í henni Kaliforníu.

 


 

          22.01.09

M-Audio komu sprækir til leiks með eitt og annað bráðmagnað

 í fartaskinu. Ný lína af stjórnborðum "AxiomPro" (sjá mynd)

var frumsýnd á sýningunni, en einnig kynntu þeir uppfærða

útgáfu af masteringarforritinu Ozone (Ozone4),

nýjan og bráðnettann formagnara DMP3...svo fátt eitt sé nefnt.

Sjáðu meira hér.


 

 

 

            16.01.09

Taylor-menn ekki að klikka þetta árið frekar en þau fyrri.

 Á NAMM ´09 kynna þeir meðal annars nýja gítarlínu T3 sem er

hálfkassa rafgítar "par exelance", með orginal Bigsby (T3B)

og alskyns fíneríi.

Þeir verða með myndir og video af NAMM básnum sínum

nákvæmlega hér, á meðan á sýningunni stendur.

 

 

            13.01.09

Jú allt að gerast, einungis 2 dagar þar til hin árlega NAMM

sýning (winter NAMM) hefst í Anaheim, Californíu.

Allir helstu framleiðendur hljóðfæra og hluta tengdum tónlistarbransanum verða á staðnum

til að kynna nýjustu græjurnar. Okkar maður verður á svæðinu

og munum við birta hér fréttapunkta og myndir

af því helsta sem fyrir augun ber á sýningunni...

Sjáðu vefsvæði NAMM ´09 hér.

 

 

            06.01.09

Nýtt ár gengið í garð með pompi og prakt. Á slíkum tímamótum

er fátt betra en að uppfæra og betrumbæta vefsvæði

á veraldarvefnum víða. Korg var einmitt að uppfæra

vefsvæði sitt nú um áramótin...

Sjáðu árangurinn hér.

 


 

 

            25.11.08

Behringer UMX stjórnborðin hafa farið, síðan þau komu

á markað, sem eldur í sinu um hinn stóra heim

og hvarvetna líkað afbragðs vel. Það sem helst hefur fallið í

góðan jarðveg hjá þeim sem keypt hafa gripinn er að

með stjórnborðunum fylgir USB hljóðkort ásamt

feitum og fínum hugbúnaðarpakka, þar sem Ableton Live Lite

fer fremst meðal jafningja. Pakkinn inniheldur sem sagt

 allt sem til þarf í lítið heimastúdíó.

Besti díllinn í heiminum er samt að uppfæra í leiðinni

Ableton Live Lite hugbúnaðinn í fulla útgáfu, þar sem

verðið á þeim Ableton uppfærslum sem til eru í landinu

er bara brandari...

 

 

            17.11.08

Nýja MR816 X og CSX  hljóðkortin frá Steinberg þykja sérlega vel heppnuð

(Steinberg og Yamaha unnu saman að hönnun kortana)

og hafa fengið flotta dóma að undanförnu í fagritum.

Hér að neðan er úrdráttur úr niðurlagi dóms

úr nóv. hefti Sound On Sound:

 

The MR816 series offers truly excellent audio quality for the price, and anyone

who does a lot of recording will find its DSP and zero-latency monitoring facilities

invaluable. Steinberg have also done their best to make most functions available to

users of any Mac or PC sequencer application, courtesy of the MR Editor utility.

However, for musicians, producers and studio owners who use Cubase or

Nuendo, the feature set becomes significantly more exciting, with all the effects and

routing so tightly integrated that you simply forget whether you're using DSP or

software plug-ins.

Anyone who buys this as their first audio interface and uses it with Cubase or

Nuendo will assume that such amazing integration is normal. However, the vast

majority of us, who have previously had to scurry between sequencer and thirdparty

mixing utilities, will see the MR series for what it is: a major step forward in

making the recording and mixing process as easy as possible.

 

Sjáðu meira um MR816 CSX hér,

og MR816 X hér.

Sjáðu fleiri dóma hér.

 

 


 

 

 

 
 Hafðu samband
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

            02.11.09

T.C.Electronic hafa verið undanfarin misseri að senda frá

sér réttu græjurnar, en þar á meðal má nefna Nova pedallínuna,

Harmony fetlana auk þess að þeir hafa verið að koma sterkir inn

með bassamagnara og bassabox sem þykja hljóma

sem vindurinn.

sjáðu meira hér.

Ekki spurning, það er vídeókvöld framundan.

 

 

 

 

            07.10.09

Meðal þess sem nýja Korg sendingin inniheldur er þessi

dúlla hér að ofan, microKORGXL.

Ótrúleg græja, ótrúleg sánd...

sjáðu meira hér.

 

 

 

 

 

            22.09.09

Vorum á dögunum að fá Yamaha sendingu í hús, sem

inniheldur m.a. PSR byrjenda hljómborðin, rafpíanó og

DTXplorer rafmagnstrommusettin góðkunnu.

Svo fátt eitt sé tiltekið.

...kíktu við.

 

 

 

 

            27.08.09

Randall MTS magnararnir hafa undanfarið vakið stormandi lukku

meðal gítarleikara þessa heims. Okkur var að berast enn

 einn glymrandi dómur í hendur, að þessu sinni um RM50

sem er 50w útgáfan ( fást 20w, 50w og 100w).

Sjáðu dóminn hér.

 

 

 

            16.07.09

Ný sending frá Fender inniheldur gítara, bassa,

banjó, Ukulele og magnara í stöflum,

 en auk þess var úrval fylgihluta

með í för.

kynntu þér málið.

 

 

 

            29.05.09

Toontrack var rétt í þessu að gera lýðnum ljóst að 1. júlí n.k.

komi þeir til með að setja á markað "The Metal Foundry SDX",

sem er stækkun fyrir flaggskip þeirra Superior Drums.

Superior Drums er eins og allir vita almagnað trommuforrit

þar sem notuð eru "sömpl" og taktar sem spilaðir eru af

heimsklassa trommurum, á hágæða trommusett af hinum

ýmsustu gerðum og stærðum.

Meðal þeirra sem ljáðu krafta sína við gerð pakkans voru:

Devin Townsend

(Devin Townsend, Strapping Young Lad, Steve Vai)
Daniel Bergstrand frá Dug Out Studio

(Meshuggah, In Flames, Dark Funeral, Behemoth)
Pelle Gunnerfeldt frá Gröndahl Studio

(The Hives, Moneybrother, Fireside, The International Noise Conspiracy)
Pelle Henricsson, Eskil Lövstrand og Magnus Lindberg frá Tonteknik Studio (Refused, Meshuggah, Cult Of Luna, Khoma, Hell Is For Heroes)
Mattias Eklund frá Toontrack

(Nocturnal Rites, Naglfar, Guillotine, Galneryus, Lambretta)
Jocke Skog

(Clawfinger)

Fredrik Thordendal

(Meshuggah).

Sjáðu allt um The Metal Foundry SDX hér.

Sjáðu allt um Superior Drummer hér.

 

 

 

           20.05.09

Gulli Briem lék listir sínar á MusikMesse´09 sýningunni, í henni

Frankfurt í vor. Þar var hann að kynna Paiste málmgjöll við mikla hrifningu viðstaddra, en hann er einn af nokkrum trommurum

þessa heims sem er á „endorsement“ samningi við Paiste.

Nema hvað nú er Gulli Briem kominn í bíó...neei ekki

alveg, það er dóttir hans Anita sem sér um þá hlið, en upptaka

af Gulla frá Musikmesse´09 er kominn á youtube.com.

Það voru útsendarar Paiste sem filmuðu og tóku upp (með einum mic)

okkur hinum til yndisauka...sjáðu hér.

 

 

 

            11.05.09

Það er ekki nóg með að sumarið sé að bresta á með sól

og brakandi þurrki, heldur eru snillingarnir hjá Propellerhead

að kynna nýtt forrit "Record" sem væntanlegt

er á markað á næstu misserum. Hér er á ferðinni

upptökuforrit með öllu sem til þarf og verður að segjast

að hér er gríðar spennandi hlutur á ferð sem vert

er að gefa auga, ef ekki augu.

Sjáðu allt um "Record" hér (skilduskoðun:)).

Menn geta skráð sig í beta prufukeyrslu á sömu slóð

(neðst í vinstra horninu).

 

 

 

                28.04.09

Og meira af M.I.P.A. verðlaunum, nýr og sjóðheitur

bassatrommupedall frá Pearl "Demon" fékk viðurkenningu sem besta

nýjungin í flokknum "Drum hardware".

Kunnugir segja að hann sé skjótari en skugginn og gríðar

léttur undir fæti...

Gripurinn er væntanlegur til landsins með hækkandi

sól og stækkandi lömbum í haga.

Sjáðu myndband um gripinn hér.


 

 

 

 

                     06.04.09

Jæja, Musikmesse yfirstaðin með stíl og stemmu.

Aðsendar myndir hafa borist þættinum og hluta þeirra má sjá hér að ofan, en þar eru: (fyrsta röð frá vinstri)

 1) Taylor T3, gítar úr nýju rafgítarlínu Taylor-manna.

2) DW trommusett sem smellpassar

 fyrir augað og hljómar eins og vindurinn

(eins og Taylor-inn ;)).

3) Gulli Briem einn albesti trommari skersins með "clinic"

tónleika þar sem diskar frá Paiste voru í aðalhlutverki.

4) Fender Road Worn serían hefur farið sigurför um heiminn,

með hvern afbragðsdóminn á fætur öðrum í farteskinu.

( Önnur röð frá vinstri):

1) Pearl trommusett úr Vision seríunni, gæða stöff!

2) Ibanez bassar fyrir lengra komna.

3) Bugera með nýja magnaralínu og bísna álitlega...

(neðsta röð frá vinstri):

1) Washburn Idol gítar...ferlega flottur

2) Nýjir týpur í Ecoustic kassagítarmagnaralínunni frá Peavey.

3) Vox kynnti m.a. þessa fjöleffekta græju sem er úr

Valvetronix fjölskyldunni með lampa og allt.

Smelltu á myndirnar til að sjá nánar...


 

            16.03.09

Nýja Washburn sendingin hefur vakið gríðarlega lukku

meðal almennings og vel er látið að stækkun

"ethnísku" deildar verslunarinnar.

Nú er nákvæmlega rétti tíminn til að fá

sér svo sem eitt eða tvö Ukulele...


 

         09.03.09

Limited 2009 gítarinn frá Takamine var nýlega kynntur

til sögunnar, en þessir gítarar sem koma frá þeim árlega

vekja ávallt mikla eftirtekt fyrir glæsilegt útlit og fallegan tón.

Gítarinn skartar m.a. Cool Tube formagnara sem þykir með

því svalasta á markaðnum í dag...

Væntanlegur í verslanir Tónabúðarinnar og

Hljóðfærahússins með vorinu.

Sjáðu allt um Limited 2009 hér.


 

 

 

            26.02.09

Cubase 5 mætt á svæðið í allri sinni dýrð.

Sjáðu video yfir helstu nýjungar hér.


 

              10.02.09

Ernie Ball/Music Man voru fyrir örskömmu að skjóta upp

á veraldarvefinn nýrri  og hressandi heimasíðu.

Þar er m.a. hægt að skoða allar þeirra nýjustu vörur sem

kynntar voru á NAMM'09 s.s. nýja línu í Ernie Ball strengjasettum,

ásamt nýjum og bráðhuggulegum Music Man gíturum... Einnig

er hægt að virða fyrir sér ört vaxandi hóp listamanna

sem nota Ernie Ball/Music Man vörur.

Sjáðu meira hér.

 

 

             29.01.09

Síðustu fregnir herma að von sé á Cubase 5 til

landsins bláa upp úr mánaðarmótum jan.-feb.

Sjáðu meira um Cubase 5 hér.

 

 

 

             26.01.09

Rolling Stone tímaritið vinsæla birti á dögunum lista

yfir það besta sem kom á markað 2008, ætlað þeim

sem helst vilja rokka. Nýi JAMVOX-inn frá Vox

er þar ofarlega á lista og fær topp einkunn hjá blaðinu.

Í umsögn segir m.a. “Think of it as Guitar Hero for real guitarists”

Sjáðu meira hér.

Sjáðu allt um JAMVOX hér.


 

 

           19.01.09

Meðal þess sem Fender kynna til leiks á NAMM ´09 er ný

gítar og bassa lína sem þeir kalla "Road Worn". En hér eru á ferð hljóðfæri sem ætla mætti að væru vel tilspiluð, en eru í

raun splunkuný. Kunnugir segja að það sé hreinn unaður að leika

á verkfærin, enda ekki við öðru að búast frá Fender...

Sjáðu allt um Road Worn hér.

Og "Trailerinn"er hér.

Sjáðu sérdeilis fína dóma úr Guitarist Magazine hér

(sjáðu einnig grein um framleiðsluferlið á Fender Road Worn

neðst í pdf skjalinu).

 

 

            16.01.09

Vorum að fá aftur í hús EZDrummer trommuforritið almagnaða

frá Toontrack. Með í sendingunni voru einnig stækkanir fyrir forritið

s.s „Nashville“ og „Funk Masters“ svo eithvað sé nefnt.

Kynntu þér málið...

 

 

 

            07.01.09

Eins og fleiri góðir smelltu Washburn-menn líka upp nýrri

síðu um áramótin...gríðar hressandi.

Sjáðu hér.

 

 

 

 

 

            03.12.08

Nýju Black Alpha Slipknot málmgjöllin frá Paiste eru að fá rífandi

dóma meðal almennings jafnt utanlands sem innan.

Pressan hefur einnig verið uppnumin af herlegheitunum,

dóm úr Drummer tímaritinu engilsaxneska getur þú séð hér.

Einnig er hægt að sjá viðtal við Joey hér.

Rokkið lifir...

 

 

 

           19.11.08

Á dögunum var farið í að skipta um hljóðkerfi í Akureyrarkirkju

og voru ykkar einlægir fengnir í verkið. Jú jú, breytingar

þóttu takast með eindæmu vel og öllum til mikils sóma er að stóðu.

Á vefinn okkar eru komnar myndir og

útlistingar á þeim breytingum

sem gerðar voru, sjáðu hér.

 

 

 

 


 

 

 

    10.07.08

Vorum að fá litla sendingu frá TCElectronic sem inniheldur

snilldartækin harmony-G og harmony-M frá undirfyrirtæki þeirra TC-Helicon. Bæði tækin eru röddunargræjur í fótpedal-stærð, önnur ætluð gítarleikurum (harmony-G) en hin

hljómborðsleikurum (harmony-M).

harmony-G er eitursniðug fyrir trúbadora (sem og aðra)

þar sem hún skynjar þá hljóma sem slegnir eru á gítarinn og býr til raddir sem passa við, sama á við um harmony-M

nema hvað hún er ætluð hljómborðsleikurum.

sjáðu allt um harmony-G hér.

Sjáðu allt um harmony-M hér.