|
|
|
|
Með
aðstoð tölvutækninnar er það orðið ótrúlega þægilegt að
taka upp og útsetja tónlist. Ýmis konar tónlistarhugbúnaður
er nú í boði sem getur breytt heimilstölvunni í nokkurs
konar sýndarhljóðver.
Þessi
hugbúnaður skiptist í nokkra flokka eftir því hvernig hann
meðhöndlar tónlist í tölvuumhverfinu.
Elsti
flokkurinn eru sequenser forrit. Þessi forrit vinna með
svonefnd MIDI boð, sem eru ekki hljóðmerki, heldur skipanir
um hvernig hljóðgjafi (hljóðkort eða hljómborð) á að haga
sér. Þannig fær hljóðgjafinn boð um hvenær nóta eða nótur
eiga að byrja, hvernig þær eiga að hljóma, hve lengi þær
eiga að lifa og hve sterkt.
Eitt þekktasta vörumerkið í þessum flokki er Steinberg, en þeir hafa framleitt sequensera frá því
1984. Nýjustu sequenserarnir frá Steinberg eru
Cubase
4 og
Cubase
Studio 4, geysiöflug tæki sem vinna bæði með MIDI og
hljóð. Með Cubase 4 fylgja 6 VST hljóðfæri, en 2
með Cubase Studio 4.
Cubase 4 leysir af
Cubase SX3 og Cubase Studio 4 leysir af
Cubase SL.
Cubase
Essential 4 er tilvalið fyrir byrjendur
og aðeins lengra komna á þessu sviði,
Forrit sem vinna með tónlist á MIDI formi geta alla jafna
einnig skrifað hana út á nótum.
Flaggskip Steinberg er þó tvímæla-laust Nuendo,
sem er hljóðvinnsluforrit í hæsta gæðaflokki. Öfugt við
önnur ráðandi forrit á þeim markaði er Nuendo
svokallaður
“native” búnaður – þe. keyrir á þinni tölvu – þú þarft ekki
að kaupa sérstakan Nuendo vélbúnað. Þetta gerir allar uppfærslur
og breytingar ódýrari og einfaldari. Nuendo styður VST staðalinn
og býður þar með aðgang að óteljandi VST “plug-in”
efektum.
Steinberg
er frumkvöðull VST (Virtual Studio Technology) tækninnar sem
notuð er af atvinnumönnum um allan heim.
Halion(sampler),
Virtual Guitarist
(inniheldur 6Gb af sömplum) ,
Groove Agent (trommuleikari) og
Virtual Bassist (bassaleikari) eru byggð á þessari tækni.
Wavelab er fulltrúi fyrir enn einn hóp tónlistarforrita, svokallaðra
"wave editora" eða "bylgjubreyta". Þessi
forrit eru notuð td. til að breyta hljóði eftir að það er
komið inní tölvuna - deyfa eða magna hluta, skeyta tveim
eða fleiri hlutum saman í einn, snúa við bútum eða jafnvel
teikna eigin hljóðbylgju..
Kíktu
á Cubase.net
og Nuendo.com
en þarna sérðu yfirlit yfir hvaða umræður eru í gangi
hjá notendum forrita frá Steinberg.
Propellerheads
- Hinir sænsku eru höfundar Reason, sem inniheldur
meðal annars sampler, virtual analog syntha, trommuheila,
“rexfile” player og tvo sequensera auk mixers og hellings
af effektum! Reason geturðu tengt inn í Cubase
eða Nuendo með Rewire og færð þessi hljóð þá inn á
mixerinn.Nokkuð
er líka til af sýndarhljóðfærum sem eru nokkurs konar
dótturforrit - þe. vinna innan Cubase/Nuendo og verða partur af því. Þannig
færa þau þér hljóðfæri (orgel, hljóðgerfla, trommur ofl)
inn í Cubase/Nuendo. Nær því að koma upp hefðbundnu hljóðveri
í tölvunni verður varla komist.

M-Audio bjóða upp á
ProTools M-powered, sem er sérstök útgáfa af
ProTools ætluð með Firewire og USB hljóðkortunum þeirra
M-Audio manna. Nýjasta útgáfa Pro Tools M-powered er 8.0,
drekkhlaðin flottum fítusum.
Auk þess bjóða M-Audio uppá ómissandi forrit eins og
Ozone,
Trash og
Spectron eitthvað sé nefnt...

Ableton
Live er ákaflega vinsælt meðal „ Live“ flytjenda og
þykir aðgengilegt viðmót þess mjög vel heppnað. Með nýjustu
útgáfu (V. 7.0) er Ableton Live orðið öflugt alhliða
upptökuforrit, þar sem unnið er með hljóð- og midi-skrár
jöfnum höndum.
|
Vert er þó að benda á að til að ná ásættanlegri útkomu með
sýndarhljóðfæri þarf nokkuð öfluga tölvu og hljóðkort sem
styður svokallað ASIO (Audio Stream In/Out).
Til
að ná hámarks hljómgæðum út úr tölvu þarf gott hljóðkort.
Fullkomnari Soundblaster kortin eru
að mörgu leyti mjög skemmtileg en duga þó skammt ef fólk
vill ná útgáfuhæfum gæðum. Gífurlegur fjöldi af "Professional"
hljóðkortum er í boði, öll hentug til hljóðupptöku.
Við
bjóðum pro hljóðkort frá M-Audio
,
RME,
Presonus
og Steinberg.
|
HEIM
|


Nuendo, flaggskip þeirra
Steinbergmanna er fullkomið upptökuforrit með áherslu á
multimedia eftirvinnslu (kvikmyndir, tölvuleikir osf).

Halion One fylgir með Cubase 4.
Með honum kemur fjöldinn
allur af hljóðbönkum.

Wavelab er öflugt
hljóðvinnsluforrit frá Steinberg.


Combinator er eitt af
meðfylgjandi "tækjum" Reason, sem gerir þér kleyft að raða saman hljóðfærum
og effektum á þægilegan hátt.

Með Darbuka og Latigo
getur þú nálgast ásláttarhljóðfæri frá fjarlægum heimshornum á
aðgengilegu verði.

Ableton Live hefur
hlotið fjölda viðurkenninga hjá
fagritum.
|
|