Félagsheimilið í Grímsey.

Þegar haft var samband við okkur frá Grímsey var ekki búið að gera sér almennilega í hugarlund hvað hljóðkerfið sem kaupa átti þurfti að gera.  Við byrjuðum á því að setja saman svona “þarfagreiningu” og sendum þeim forráðamönnum.  Þegar menn voru búnir að komast að því hvað þeir vildu geta gert var hafist handa.  Eftir að vera búnir að kasta nokkrum hugmyndum á loft var ákveðið að setja upp aðskilda botna og toppa við sviðið og minni hátalara aftar í salinn.  Þannig væri hægt að nota kerfið sem nokkurs konar bíókerfi, í alla fundi og samkomur, ásamt því að geta sinnt þeim hljómsveitum sem sækja eyjabúa heim.

Hljóðkerfið samanstendur af 18” botnum - Peavey UL118, 12” + 1,5” toppum – Peavey UL-12 og 10”+1” hátölurum – Peavey UL10.

Botnarnir eru  á sviðinu, 12” topparnir eru sitt hvoru megin við sviðið, hengdir upp á vegg og 10” hátalararninr eru settir sitt hvoru megin í salinn, aftarlega, ca ¾ a salarlengdinni frá sviðinu.  Allir hátalararnir eru frá Peavey úr Messenger línunni.  Við þetta eru tengdir Behringer kraftmagnarar, EP2500 við botna og toppa og EP1500 við minni hátalarana.  Þessu er evo öllu stýrt frá Behringer Ultra Drive DCX-2496 hljóðstýringu.  Einnig var settur upp nýr mixer, Behringer UB-2442FX-pro og kerfið síðan tengt og stillt upp.

Hljóðstýringin er sett upp þannig að einn stilling er fyrir útsendingar kappleikja, söngvakeppna og slíks, ein stilling fyrir talað mál og ein stilling fyrir tónlist leikna af geilsadiskum og ein stilling fyrir lifandi tónlist.  

Hljóðnemar og standar voru til í samkomuhúsinu fyrir og verða þeir notaðir áfram

 

 

 

 

 

 

 
 Hafðu samband

 

 

 

10" hátalarar festir uppundir loft í sal.
 
12" toppar á festingum sitthvoru megin við sviðið
 
Peavey UL12 (12"+1,5" toppur) haglega fyrirkomið.
 
Sýningatjaldið komið niður og bíómynd varpað á tjaldið og hljóðkerfið keyrt til prufu.
Í búrinu eru magnarar (Behringer EP1500 og EP2500), mixer (Behringer UB2442FX-pro), Behringer Ultra Drive DCX-2496 fyrir hljóðstýringu, ásamt geislaspilara og fleiri græjum í þeim geira.
 
Það er ómögulegt að sýna myndir frá Grímsey án þess að láta eina landslagsmynd fljóta með.